52 tilbúnar tengingar. Nýjar bætast við mánaðarlega

Öflugri gagnatenging fyrir snjallari ákvarðanir

MeshPro hjálpar þínu fyrirtæki að nýta gögnin betur, auka sjálfvirkni, minnka handavinnu og tengja saman ólík kerfi á snjallan hátt.

52

tilbúnar tengingar

60

gagnaferlar í rekstri

10 þús

mánaðarlegar keyrslur

5 Ma

línur sóttar í gegnum MeshPro

Af hverju MeshPro?

Ein öflug lausn til að tengja,
flytja og umbreyta gögnum.

Sjálfvirkar uppfærslur

Gögn eru sótt og uppfærð reglulega, engin þörf á handvirkum innlestri eða Excel-flækjum.

Bein tenging við gögn

MeshPro tengist beint við upprunalegar API-veitur, örugg, hraðvirk og traust flutningsleið.

Sveigjanleg samþætting

Við tengjum saman ólík kerfi, hvort sem það er bókhaldskerfi, CRM eða sérlausnir, án flækjustigs.

Gagnadrifnar ákvarðanir

Rauntímagögn veita stjórnendum og teymum betri innsýn og hjálpa til við að taka upplýstar ákvarðanir.

Fullkomin yfirsýn

Allar mikilvægar upplýsingar saman komnar á einum stað, betri yfirsýn og minna um glötuð gögn.

Einföld skýrslugerð

Auðvelt að búa til sjálfvirkar skýrslur með gögnum sem eru alltaf uppfærð og tilbúin til notkunar.

Tilbúnar tengingar

52 kerfi, tilbúin í dag

Hvert kerfi hefur sínar eigin töflur og forkröfur.

Sjá öll kerfin
Lausnir

Lausnirnar okkar

Við bjóðum upp á þrjár lausnir, allt eftir þínum þörfum.

Data Flow

Viltu auðveldan aðgang að þínum gögnum?

MeshPro tengist við kerfin þín og sækir gögnin sjálfkrafa. Skilar gögnunum á þinn lendingarstað, SQL Server, PostgreSQL eða Azure Datalake.

Data Sync

Viltu minnka handavinnu?

MeshPro býr til sjálfvirkt gagnaflæði á milli kerfa fyrirtækisins þíns og stofnar sjálfvirka sölureikninga í bókhaldskerfinu þínu út frá gögnum úr öðrum kerfum.

Data Access

Viltu gera gögnin þín aðgengileg á öruggan hátt?

MeshPro gerir gögn aðgengileg í gegnum vefþjónustur með aðgangsstýringu, hvort sem það er fyrir innanhúskerfi, viðskiptavini eða samstarfsaðila.

Umsagnir

Reynsla viðskiptavina

Sjáðu hvað viðskiptavinir okkar hafa að segja um sína reynslu.

Icelandia

„Gagnapumpur MeshPro hafa gengt mikilvægu hlutverki við að byggja upp gagnaumhverfi Icelandia. Lausnin hefur sparað okkur ómældan tíma við sölugreiningu, afstemmingar og sjálfvirknivæðingu. Okkar ráðgjafar hjá MeshPro hafa ávallt veitt okkur framúrskarandi þjónustu og sýnt mikinn sveigjanleika varðandi breytingar eða sérlausnir. Við mælum hiklaust með þjónustu MeshPro."

Íslandsstofa

„MeshPro hefur auðveldað utanumhald á gögnum gríðarlega, allar gagnapumpur á einum stað beint í okkar eigin gagnagrunn. Þjónustan sem þau bjóða upp á með gögnin frá Hagstofunni hefur gert okkur kleift að komast dýpra í útflutningstölur Íslands en við höfum nokkurn tímann komist. Sveigjanleg og góð þjónusta!"

Íslandshótel

„Frábært, þetta gekk 100p og stelpurnar hjá mér alsælar með vinnusparnaðinn."

Tenging tilbúin? Við látum þig vita

Viltu vita hvort MeshPro sé nú þegar með tengingu við kerfið sem þú notar? Sendu inn fyrirspurn og við svörum sem fyrst.

Emil Hjaltason emil@meshpro.is
Þórdís Björk Arnardóttir thordis@meshpro.is

Hvaða kerfi vilt þú tengja við MeshPro?